Uppstilling í öllum kjördæmum við val á framboðslista XM

Stjórnir kjördæmafélaga Miðflokksins hafa ákveðið að uppstilling verði notuð við val á framboðslista fyrir alþingiskosningarnar sem fram fara þann 25. september næstkomandi.

Uppstilling verður viðhöfð í öllum kjördæmum og munu uppstillinganefndir taka til starfa á næstu dögum.

Samhliða því verður auglýst eftir framboðum á lista í öllum kjördæmum.