Miðflokkurinn gagnrýnir harðlega nýtt fyrirkomulag stjórnvalda varðandi skimanir fyrir brjósta- og leghálskrabbameinum sem tók gildi 1. janúar 2021.
Voru skimanir færðar frá Krabbameinsfélaginu til heilsugæslu og Landspítala og skimunaraldri fyrir brjóstakrabbameini breytt úr 40-69 árum í 50-74 ár. Konum verður þannig ekki boðið upp á brjóstaskimanir fyrr en við fimmtíu ára aldur í stað fjörtíu eins og verið hefur undanfarin ár hjá Krabbameinsfélaginu.
Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsfélaginu má oft greina brjóstakrabbamein á byrjunarstigi með röntgenmyndatöku af brjóstum áður en einkenni koma fram. Á tímabilinu 2015-2019 greindust árlega að meðaltali 31 brjóstakrabbamein hjá konum á aldrinum 40-49 ára og er reiknað með að um þriðjungur þeirra meina hafi greinst í skimun. Skimanir bjarga mannslífum.
Uppfært 15. janúar: Í kjölfar mikillar gagnrýni hefur heilbrigðisráðherra frestað breytingu á skimunaraldri.
Laugardaginn, 16. janúar heldur Miðflokksfélag Suðvesturkjördæmis opinn fund um málefnið á Zoom.