Hvað kostar bygging 39.080 í­búða á næstu 10 árum hið opin­bera?

Húsnæðisskortur er í landinu. Húsnæðis og mannvirkjastofnun (HMS) gefur það út að þörfin sé 39.080 íbúðir á næstu 10 árum. Til að bregðast við húsnæðisvandanum hafa stjórnvöld og ýmsir hagsmunaaðilar rætt og kynnt ýmsar lausnir á því hvernig mæta skuli húsnæðisþörfinni. Í því samhengi hefur einkum verið rætt um uppbyggingaráform íbúða fyrir tekju- og eignaminni og hvernig lánafyrirkomulag á að auðvelda kaupendum að eignast sína fyrstu íbúð. Það hefur hinsvegar alveg gleymst að ræða hvað það muni kosta hið opinbera að fjárfesta í nauðsynlegum innviðum sem fylgja slíkri uppbyggingu.

Hvernig slík uppbygging er svo fjármögnuð er mjög mismunandi eftir sveitarfélögum. En það er alveg ljóst að í upphafi slíkra uppbyggingaráforma að þá ríkir stærðaróhagkvæmni sem fer síðan minnkandi með tímanum þar til að ráðist er í innviðafjárfestingar að nýju. Þannig skiptast á tímabil hagræðis og óhagræðis í fjárhag sveitarfélaga þar sem að í upphafi þarf að leggja í stofnkostnað sem ekki kemur til baka fyrren að nokkrum árum liðnum í formi skatta og gjalda á íbúa.

En hvað kosta innviðirnir?

Til að nýjar íbúðabyggðir geti orðið að veruleika eru ýmsir innviðir sem hið opinbera þarf að fjárfesta í, fyrir og á meðan á uppbyggingunni stendur. Í upphafi þarf að fjárfesta í landi, skipulagsvinnu, veitum, götum og gangstígum og skólum auk þess sem stækka þarf ýmsa innviði sem fyrir eru s.s. afþreyingarmiðstöðvar (íþróttir, félagsmiðstöðvar, söfn osfrv..) heilsu- og löggæslubyggingar.

Það er ekki úr auðugum garði að gresja þegar leitað er að upplýsingum um það hver heildarkostnaður og afleiddur kostnaður innviðafjárfestinga nýrra íbúahverfa er hér á Íslandi. Engin viðmið eru að finna og hvergi er að finna kostnaðar- eða rekstraráætlanir innviðafjárfestinga með aðal- eða deiliskipulögum sveitarfélaga. Helst er að finna slíkar áætlanir erlendis frá s.s. frá Alþjóðabankanum eða áætlunum stórborga s.s. Calgary í Kanada.

Til að geta varpað einhverju ljósi á það hvað innviðirnir gætu kostað að þá verður hér byggt á reynslutölum sem fengnar eru úr Stekkahverfi á Selfossi í Svf. Árborg sem að er í byggingu. Hverfið er dæmigerð blönduð íbúðabyggð með verslun og þjónustu sem inniheldur fjölbýli, rað-, par- og einbýlishús og tekur yfir 50,6 ha. lands. Í hverfinu er skólabygging sem stendur á 2,9 ha. lóð. Fjöldi íbúða í hverfinu eru 656 eða 13 íbúðir á ha.. Miðað við fjölda íbúða í hverfinu að þá má gera ráð fyrir því að hverfið muni hýsa 1.700 íbúa þar sem að fjöldi íbúa í íbúð í Svf. Árborg eru að meðaltali 2,6, á Íslandi er meðaltalið 2,5.

Aðrar forsendur eru fengnar úr gagnasafni HMS, Hagstofunnar og úr kostnaðaráætlunum ýmissa fyrirhugaðra opinberra framkvæmda sem uppfærðar eru mv. byggingarvísitölu s.s. úr frumathugunarskýrslu vegna byggingar legudeilda við Sjúkrahúsið á Akureyri auk ýmissa hönnunarviðmiða fyrir opinberar framkvæmdir (sjá töflu).

Með framangreindum forsendum má sjá að fyrir hverja íbúð sem byggð verður á næstu 10 árum að þá þarf hið opinbera, ríki og sveitarfélög að leggja út a.m.k. 20 milljónir króna í stofnkostnað eða um 800 milljarða króna fyrir 39.080 íbúðir.

Tómas Ellert Tómasson, byggingarverkfræðingur og fyrrv. bæjarfulltrúi Miðflokksins í Svf. Árborg.

Greinin birtist á Vísir.is 26. júní, 2023.