Síðasti löggilti tréskipasmiðurinn á Íslandi útskrifaður?

Aumt þykir mér að tréskipasmíði verði héðan í frá ekki löggild iðngrein. Kennslan í þessari grein á framvegis að falla undir kennslu í húsasmíði. Það er fátt skylt með húsasmíði og bátasmíði. Í fréttum á dögunum var viðtal við Einar Jóhann Lárusson sem hefur nýlokið við sveinspróf í tréskipasmíði og Hafliða Aðalsteinsson skipasmíðameistara og meistara Einars Jóhanns. Þeir eru að sjálfsögðu mjög óhressir með þessa ákvörðun yfirvalda að úthýsa tréskipasmíði sem löggiltri iðngrein í skólum. Þeir félagar eru núna að smíða 11 metra langan súðbyrðing af fyrirmynd báta sem notaðir voru til útgerða á Íslandi frá landnámi fram á tuttugustu öld. Efniviðurinn er allur úr íslenskri skógrækt.

Í Danmörku og Noregi styrkja yfirvöld þessa iðngrein og þar er nóg að gera og hafa margir skipasmiðir vinnu í greininni. Auk þess er vinsælt þar að taka vel á móti ferðafólki sem vill kynna sér menninguna á lifandi hátt, það er að segja, sjá með eigin augum hvernig aldagömul aðferð við tréskipasmíði er viðhaldið.

Sem alþingismaður lagði ég fram frumvarp og mælti fyrir í þrígang um verndun og varðveislu skipa og báta. Þar var alþingi gert að fela mennta og menningarmálaráðherra að skipa starfshóp sem gerði úttekt um hvernig staðið yrði að verndun og varðveislu skipa og báta. Þetta frumvap fékk ágæta umræðu á alþingi og í fjölmiðlum en dagaði uppi inní nefndum alþingis.

Er það feimni við þjóðerniskennd eða hugsunarleysi um þá staðreynd að við námum hér land á tréskipum, sem aftengir stjórnvöld við þennan menningararf um tréskipasmíði og sjósókn í gegnum aldirnar.

Af því að margir eru uppteknir við að byggja undir ferðaiðnaðinn, þá er staðreynd að ferðafólk sækir í „lifandi söfn“ þar sem sýnt er í verki handbrögð, m.a í skipasmíði eins og ég gat um hér að ofan.

Iðnnám í skólum landsins á undir högg að sækja almennt. Í fyrra var um 700 iðnnemum vísað frá sem sóttust eftir iðnnámi. Það er sorglegt að handverks kunnátta eigi við ramman reip að draga líkt og staðreynd er með alla þá iðnnema sem vísað var frá skóla. Það er menningarsjokk að stjórnvöld hafi ekki kjark til að gera tréskipasmíði góð skil. Þess í stað er þessi iðngrein sett í glatkistuna.

Sigurður Páll Jónsson, varaþingmaður.

Greinin birtist á Vísir.is 18. febrúar, 2023.