Sjómenn, þekkið þið ykkar rétt?

Hinn 16. október lagði undirritaður fyrirspurnir er varða ellilífeyri sjómanna fyrir félags- og barnamálaráðherra.  Spurningin var eftirfarandi: Hefur verið kannað hversu margir sjómenn nýta sér rétt til töku ellilífeyris á aldrinum 60-67 ára? Ef svo er, hversu hátt hlutfall sjómanna nýtir þann rétt að hefja töku ellilífeyris fyrir 67 ára aldur? Í svari ráðherra kom fram að skilyrði fyrir töku ellilífeyris við sextugt sé að viðkomandi hafi stundað sjómennsku í 25 eða meira. Það er rétt að taka það fram að réttindi í lífeyrissjóðum geta verið með ýmsum hætti, margir sjómenn eiga því miður ekki alltaf mikil réttindi í lífeyrissjóðum. Ég átti því von á að þessi hópur væri nokkuð stór. Í svari kom fram að einungis 29 manns fengju lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun.
 

Til þess að geta sótt um lífeyri þarf viðkomandi að leggja fram afrit af skattframtali, tekjuáætlun og yfirlit yfir lögskráða daga. Samgöngustofa heldur utan um lögskráningar í dag en einhver dæmi eru um að kalla þurfi eftir upplýsingum um lögskráningar til þeirra embætta sem sáu um lögskráningar fyrir daga samgöngustofu. Slík upplýsingaöflun getur verið flókin og einhver brögð eru að því að sjómenn leggi ekki út í þá vegferð.

Hér er um gríðarlegt hagsmunamál að ræða. Sjómannstarfið er erfitt líkamlega og slítandi. Mikill skilningur er á því að starfsævi þeirra geti verið styttri en flestra annarra. Mikli hagsmunir liggja í því fyrir sjómenn að þeir nýti sér rétt sinn. Hagsmunasamtök og hið opinbera eiga að sjálfsögðu að veita slíkar upplýsingar. Það getur verið erfitt fyrir menn að afla sér gagna og leiðbeiningar þurfa að vera aðgengilegar.  Sjómenn eiga það svo sannarlega skilið.

 

Höfundur:  Sigurður Páll Jónsson, alþingismaður Miðflokksins í NV-kjördæmi.

Greinin birtist í Morgunblaðinu þann 29. nóvember, 2019