Vöfflukaffi laugardaginn 16. mars

Vöfflukaffi, vöfflukaffi, laugardaginn 16. mars n.k. í Hamraborg 1. milli kl. 10-12.  Gestur okkar að þessu sinni er Karl Gauti Hjaltason lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og flytur okkur erindi sem hann kallar "Löggæsla, áskoranir og ógnir á breyttum tímum".  

Hvetjum alla til að mæta, hlusta á Karl Gauta fara yfir mál sem standa okkur mjög nærri þessa dagana, taka þátt í umræðum og njóta góðra veitinga.