Aldrei aftur

Þúsundir fjölskyldna horfa nú fram á að missa heimili sín komi ekki til aðgerða af hálfu ríkisstjórnar landsins.

Ástæðan er öllum kunn.  Covid-19.

Þá ekki síst vegna þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til í nafni sóttvarnarlaga þar sem þúsundum heimila er meinað að afla sér tekna og þar með lífsviðurværis.

Hjá sumum er tekjufallið verulegt hjá öðrum algjört.

Deila má um þá aðferðafræði og úrræði sem notuð hafa verið í baráttunni við veiruna hvort heldur sem er hér á landi eða erlendis.  Athygli vekur þó að það land sem lengst hefur gengið í skerðingu frelsis borgara sinna, Spánn, er jafnframt það land sem er með hæsta nýgengni smita í Evrópu.  Langhæsta.  Slík staðreynd hlýtur að vekja spurningar.

En veltum okkur ekki upp úr vandanum skoðum frekar lausnir:

Hvað er til ráða?  Eigum við aftur að horfa upp á þúsundir fjölskyldna missa heimili sín að ósekju?  Svarið er Nei.  Þegar svona er komið þarf að hugsa út fyrir kassann og finna lausnir.

Ríkisstjórnin getur með fulltingi Alþingis komið til bjargar.  Gera mætti lánastofnunum skylt að frysta lán og skuldbindingar þeirra sem hafa misst getuna til að standa undir slíku vegna þeirra aðstæðna/aðgerða sem áður eru nefndar.  Frysting felur í sér að engir vextir safnast, enginn kostnaður.  Lán og skuldbindingar halda krónutölu sinni.  Viðkomandi lánastofnanir fá á móti núll vexti hjá SÍ fyrir samsvarandi upphæð og fryst er.  Sömu aðferðafræði mætti síðan beita víðar.  Sveitafélög geta sem dæmi boðið upp á frystingu fasteignagjalda með sama hætti svo eitthvað sé nefnt.  Sömu aðferðafræði væri jafnframt beitt vegna þeirra sem eru á leigumarkaði.

Enginn á að missa heimili sitt vegna aðstæðna og aðgerða sem þeir hafa ekkert með að gera og engar varnir gegn.  Allt skal gert til að hindra slíkar hörmungar.  Undirritaður gefur sig ekki út fyrir að vera sérmenntaður í fjármálafræðum en hefur þó fullvissu fyrir því að aðgerðir sem þessar eru sannarlega framkvæmanlegar.  Allt sem þarf er vilji.

Eitt er ljóst. Ekkert okkar vill horfa upp á fólk og fjölskyldur missa heimili sín og býli aftur.

Aldrei aftur.

 

Höfundur:  Baldur Borgþórsson, varaborgarfulltrúi Miðflokksins.

Greinin birtist fyrst á Vísi þann 7. október, 2020