Vegagerðin kynnti fyrirhugaða lagningu Sundabrautar á fundum í liðinni viku. Ætlunin er að brautin geti tekið við umferð árið 2031. Jæja, þá hefur enn annar tjaldhællinn verið rekinn niður í þessari vinnu. Það er til bóta.
Fram til þessa hafa allir steinar sem menn hafa fundið verið lagðir í götu þessa verkefnis. Landsvæðið undan heppilegustu veglínu Sundabrautar var selt með hraði til verktaka fyrir íbúðabyggð svo sú leið varð ófær. Byggð hefur verið þrengt upp að áætlaðri veglínu í Gufunesinu, stæðilegustu „bráðabirgða“-húsum hefur verið komið fyrir í vegstæðinu og svo mætti lengi telja.
Það er því ekki skrýtið að maður stoppi við og hugsi – hvaða steinn ætli verði tekinn næst og lagður í götu Sundabrautar? Hvernig verður næst komið í veg fyrir þessa arðsömustu samgöngubót landsins?
Ég sé þegar glitta í einn. Nú er það orðið svo að til að leggja megi Sundabrautina þá verði fyrst að leggja Sæbrautina í stokk. Það er verkefni sem kostar ævintýralega mikið og bætir engu við hvað umferðarrýmd varðar, það verða áfram tvær akreinar í hvora átt á Sæbrautinni.
Það hefur alla tíð verið lykilsjónarmið fulltrúa Reykjavíkurborgar að tengja verkefnin tvö ekki saman, þ.e. lagningu Sundabrautar og samgöngusáttmálann, með Sæbrautarstokki eða ekki.
Sundabrautin hefur, til þessa, verið utan við samgöngusáttmálann. En nú er það skyndilega svo að hinn rándýri Sæbrautarstokkur er orðinn forsenda Sundabrautar, svo Sundabraut geti tengst við Sæbraut vestan Kleppsvíkur.
Það er og verður vandséð hvernig þessi forsenda kom til, nema þá helst til að þeir sem mestu ráða í Reykjavík geti enn tafið verkefnið og lagt annan stein í götu þess. Borgarstjórinn vill ekki Sundabrautina – það er orðið dagljóst.
Til gamans má geta þess að í skýrslu verkefnahóps á vegum samgönguráðherra sem skilaði skýrslu sinni 2019 og lagði mat á kosti Sundabrúar annars vegar og Sundaganga hins vegar, hvað þverun Kleppsvíkur varðar, kom hvergi fram að lagning Sæbrautar í stokk væri forsenda Sundabrautar.
Því var svo ranglega haldið fram í samgöngusáttmálanum að það hefði verið niðurstaðan að ein forsenda Sundabrautar væri Sæbrautarstokkurinn.
Niðurstaðan er og verður að það er engin nauðsynleg tenging á milli verkefnanna tveggja, Sundabrautar og Sæbrautarstokks. Fyrir utan hið augljósa að það væri þægilegt að geta gert allt strax, en raunheimar leyfa það ekki alltaf.
Þeir sem raunverulega vilja tryggja að Sundabraut verði lögð skulu því gæta sín á þessum leik borgarstjóra og innviðaráðherra. Sundabrautin á að ganga fyrir þegar kemur að samgöngubótum.
Höfundur er þingflokksformaður Miðflokksins. bergthorola@althingi.is