Matarhorninu hefur borist ný uppskrift frá þingmanninum okkar Þorsteini Sæmundssyni. Að þessu sinni deilir Þorsteinn með okkur uppskrift að ljúffengri Ketó skál fyrir tvo.
Ketó skál fyrir tvo
- 1 bakki af uppáhaldssalatinu ykkar
- 10 kirsuberjatómatar skornir í tvennt
- Hálfur poki Edamame baunir
- 1 poki ,,Hot mexican quinoa“
- Hálfur rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
- 6 sneiðar beikon, skornar í litla bita
- 250-300 gr. nautahakk
- 2 egg
Eldunaraðferð:
Hitið Edamame baunir á pönnu í smá olíu og saltið vel.
Hitið beikonið í ofni í eldföstu fati þar til brakandi.
Mótið tvö buff úr hakkinu og steikið að smekk, kryddið með salti og pipar.
Hitið Quinoa í tvær mínútur á pönnu í smá olíu.
Spælið eggin að smekk.
Raðið öllu í skál. Salat og annað grænmeti neðst, svo beikon, edamame og quinoa. Buffið efst og spælt egg ofan á.
Verði ykkur að góðu!