Bleiki dagurinn

Í dag, 20. október er bleiki dagurinn.  

Á Bleika deginum, föstudaginn 20 október, hvetjum við landsmenn til að vera bleik - fyrir okkur öll bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Við, eins og margir aðrir, höfum óþyrmilega verið mynt á mikilvægi þess að sýna samstöðu í verki með málstaðnum.  Tökum þátt og látum gott af okkur leiða.