Eldhúsdagsumræður

Hæstvirtur forseti. Góðir landsmenn.

Í upphafi þessa kjörtímabils boðaði ríkisstjórnin að allir landsmenn gætu notið góðrar þjónustu heilbrigðiskerfisins. Það væri óháð efnahag og búsetu. Það átti sérstaklega að bæta geðheilbrigðisþjónustu, auka forvarnir og byggja upp hjúkrunarrými. Hæstv. heilbrigðisráðherra sagðist bjargvættur heilbrigðiskerfisins. Auk þessa átti að efla eftirlits- og aðhaldshlutverk Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu. En hver er raunveruleg staða?

Fjöldi á biðlistum eftir algengum aðgerðum hefur margfaldast frá því í október 2017 til dagsins í dag. Samningar hafa verið í uppnámi við fjölmargar stéttir innan heilbrigðiskerfisins sem hefur leitt af sér óvissu og óöryggi allra þeirra sem reiða sig á þessa sömu þjónustu. Það bætist við biðlistana. Sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum er einnig haldið í óvissu, allt í nafni kerfisins, þess marxíska.

Kæru landsmenn. Þúsundir kvenna bíða milli vonar og ótta um örlög sín vegna klúðurs í meðferð leghálsskimunarsýna. Allir sérfræðingar hafa bent á hversu hættulegt það er að halda áfram á sömu braut. En nú hlustar hæstv. heilbrigðisráðherra ekki á sérfræðinga. Það hentar ekki í þessu máli. Hæstv. heilbrigðisráðherra bíður eftir að þingi ljúki svo umræðan sofni. Skýrsla um málið hefur enn ekki komið fram. Þó var okkur lofað að hún kæmi í allra síðasta lagi í síðustu viku. Læknar á bráðadeild Landspítalans segjast ekki geta tryggt öryggi sjúklinga. Þeir hafa neyðst til að senda frá sér ályktun vegna þessa. Aðstæður á geðsviði Landspítala eru engum bjóðandi, hvorki starfsfólki né þeim sem þangað leita. Það sama má segja um geðheilbrigðismálin í allri sinni heild, bæði þeir sem þurfa á þjónustunni að halda og þeir sem starfa innan hennar hafa bent á það lengi. Biðlisti eftir viðtölum við heilsugæslulækna er talinn í vikum, jafnvel mánuðum, herra forseti. Sjúkraþjálfarar og sálfræðingar fá ekki raunverulega að starfa nema þá að ráða sig á stærri stofur eða stofnanir. Endurhæfing fjölda manns er í uppnámi. Þúsundir Íslendinga líða óþarfaþjáningar á hverjum degi vegna þessa ástands, þar með talið starfsfólk sem er ætlað að hlaupa hraðar á styttri tíma vinnuvikunnar.

Enn þarf fólk að ferðast um langan veg til að sækja sér nauðsynlega þjónustu. Ríkið skammtar svo hverjum og einum hversu oft á ári. Ekki er að sjá að koma eigi til móts við þá sem þurfa um þennan langa veg, þvert á móti. Þetta gerist á vakt Vinstri grænna í boði Sjálfstæðisflokksins. En svar ríkisstjórnarinnar er að innleiða fjarheilbrigðisþjónustu til að friða fólkið úti á landi, svo hægt sé að segja að verið sé að veita öllum sömu þjónustu. Þannig er íbúum þessa lands mismunað.

Og til að toppa allt saman þá boðaði hæstv. heilbrigðisráðherra svokallaða afglæpavæðingu neysluskammta fyrir nokkrum mánuðum. Ég velti því fyrir mér í dag hvort það hafi verið svar við aukinni neyslu á kókaíni sem hefur jú aukist jafnt og þétt frá árinu 2017.

Kæru landsmenn. Þegar kosið verður í september verður kosið um uppbyggingu eftir Covid. Það verður kosið um það hvort landsbyggðin muni eflast eða áfram sæta varnarbaráttu. Það verður kosið um framtíð heimila og atvinnu. Við höfum séð á þessu kjörtímabili hve sundurlynd og stefnuvillt ríkisstjórn kemur litlu í verk þegar markmiðið er óljóst annað en að halda völdum.

Kæru landsmenn. Það verður kosið um hvernig okkur muni vegna á næstu árum, hve mikið landsmenn hafa milli handanna og hvernig við stöndum undir velferðarkerfinu öllu.

Við í Miðflokknum munum kynna stefnu og aðgerðir sem staðið verður við. Ísland allt á það skilið. — Góðar stundir.

 

Anna Kolbrún Árnadóttir, 8. þingmaður Norðausturkjördæmis

Eldhúsdagsumræður 7. júní, 2021

Anna Kolbrún talaði fyrir Miðflokkinn í 2. umferð