Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir: „Öflugt menntakerfi er forsenda framfara og boðar ríkisstjórnin stórsókn í menntamálum. Skapandi og gagnrýnin hugsun, læsi og þátttaka í lýðræðissamfélagi verður áfram undirstaða íslenska skólakerfisins. Lögð verður rík áhersla á að efla menntun í landinu með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi. Nýsköpun og þróun verður að efla á öllum skólastigum enda er menntun kjarninn í nýsköpun til framtíðar.“
Þessi stefna ríkisstjórnarinnar kom mér í hug þar sem við Alþingismenn heimsækjum kjördæmin okkar í þessari viku og kynnum okkur allt það öfluga starf sem heimamenn á hverjum stað leggja til samfélagsins. Í hjarta Hallormsstaðaskógar er Hallormsstaðaskóli og þar fer fram nám í sjálfbærni og sköpun með áherslu á hráefni úr nærumhverfinu á sviði matarfræði og textíls. Áhersla er lögð á sjálfstæða verkefnavinnu nemenda og að þeir tileinki sér skapandi og gagnrýna hugsun þar sem fræði og framkvæmd eru tengd saman. Þessi stefna skólans rímar fullkomlega við stefnu ríkisstjórnarinnar. En samt er það þannig að Hallormsstaðaskóli þarf nú að berjast fyrir tilveru sinni, eins undarlega og það hljómar, þrátt fyrir að skólinn hafi svo sannarlega hannað námskrá sína í takt við það sem best gerist á sviðum sjálfbærni og sköpunar í samvinnu við atvinnulífið hringinn í kringum landið og jafnvel út fyrir landsteinana. Segja má að Hallormsstaðaskóli sé bæði nauðsynlegur og kærkominn ekki aðeins fyrir nemendur á Austurlandi heldur á Íslandi öllu, margir nemendur koma frá öðrum lands- og heimshlutum, þeir sækja bæði það sem kalla má hefðbundið nám en einnig hafa nemendur sótt svokölluð MasterClass-námskeið.
Alls staðar er verið að leggja áherslu á sjálfbærni og nýsköpun hvert sem litið er í stefnur og sýn á Íslandi í dag. Nefna má í þessu sambandi heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, framtíðarstefnu Íslandsstofu í útflutningi og stefnumótunarvinnu fyrir ferðaþjónustu, íslenska neytendur og almennt í allri stjórnsýslu. Ísland á að vera þekkt sem leiðandi land í sjálfbærni. Til að standa undir þessum stefnum þarf að vera menntun á sviði sjálfbærni og sköpunar og hana hefur Hallormsstaðaskóli svo sannarlega. Vonandi fær Hallormsstaðaskóli svigrúm til að þróa og laga áfram nám að framtíðarsýn og stefnu Íslands í sjálfbærni. Sóknartækifærin eru víða og margir hafa sýnt því áhuga að vera í samstarfi við skólann. Það er því ástæða til þess að bregðast við núna og ég hvet alla hagaðila til þess að sýna það í verki.
Höfundur: Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu þann 12. febrúar, 2020