Flestir þeirra sem hafa notið þjónustu leigubifreiða hér á landi vita að þeir geta treyst bæði bílstjórunum og bifreiðum þeirra. Ef eitthvað kemur upp á geta þeir leitað til stöðvarinnar og borið upp erindi sín eða kvartanir, t.d. ef þeir eru að leita að týndum munum. Foreldrar geta sent barnapíuna heim til sín í leigubifreið að nóttu til án þess að hafa áhyggjur og það sama á við þegar aldrað gamalmenni þarf milli bæjarhluta.
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp sem mun breyta starfsaðstæðum leigubifreiðastjóra verulega. Fella skal niður skyldu bílstjóra til að tilheyra leigubifreiðastöð, fjöldatakmarkanir felldar brott og aðgengi að leyfum gefin að mestu frjáls að því marki að einungis þurfi tilskilin ökuréttindi. Krafan er sögð vera til komin vegna skuldbindinga okkar skv. EES-samningnum um að fjarlægja þurfi allar aðgangshindranir. Þessar breytingar standa fyrir dyrum, þrátt fyrir að íslenska ríkið hafi hvorki verið dæmt brotlegt í þessum efnum né fengið formlegar athugasemdir eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Eins og stundum áður eigum við að vera fyrirmynd annarra hvað varðar innleiðingu reglna EES-samningsins.
Nú gæti þetta litið út fyrir að vera hið besta mál í hugum margra, að leigubifreiðum fjölgi á mestu annatímum, en hverju yrði í staðinn fórnað? Reynsla Finna af breytingunni er að þar versnaði þjónustan, verð hækkaði og traust á þjónustunni minnkaði og er þar nú unnið að því að snúa til baka til fyrra horfs og sníða af helstu vankantana. Í Danmörku er staðan sú að þeir fengu undanþágu í mikilvægum atriðum svo sem stöðvaskyldunni og fjöldatakmörkunum að miklu leyti. Þar í landi er einnig gerð krafa um dönskukunnáttu bílstjóranna. En hér á landi liggur á að ana út í foraðið, þrátt fyrir enga knýjandi þörf þar á og með slæma reynslu nágranna okkar í farteskinu.
Leigubifreiðastöðvarnar hafa veitt bílstjórum nauðsynlegt aðhald í mörgu tilliti og komið fram út á við gagnvart viðskiptavinum. Hér hafa nýliðar í stéttinni hafið störf með því að aka til reynslu í nokkur ár og hefur það oft orðið til þess að þeim sem ekki standast kröfur er vikið úr stéttinni eða þeir sem ekki finna sig hætta sjálfkrafa. Bílstjórar á stöðvunum hafa um árabil átt mikið og gott samstarf við lögreglu með að aðstoða og upplýsa bæði afbrot og hjálpa til við t.d. leit að fólki. Þar skiptir miklu að stöðvarnar hafa, hver um sig, yfirsýn yfir sína bílstjóra.
Málið er mikilvægt fyrir stóra starfsstétt, sem þarna getur búist við að öllum starfsaðstæðum hennar sé kastað upp í loftið í von um að allt fari það vel. Miðflokkurinn telur að í þessu máli beri að flýta sér hægt og læra af reynslu nágrannaþjóða. Öryggi farþega og umferðar verður hér að vera sett ofar öllu öðru.
Höfundur: Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Greinin birtist í Morgunblaðinu þann 21. febrúar, 2020