Sigmundur Davíð Gunnlaugsson endurkjörinn formaður Miðflokksins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var endurkjörinn formaður Miðflokksins á Landsþingi flokksins sem var að ljúka.

Sigmundur Davíð var endurkjörinn með háværu lófaklappi þingfulltrúa.  

Aðrir sem hlutu kjör í stjórn voru:

Heiðbrá Ólafsdóttir

Ómar Már Jónsson

Þorgrímur Sigmundsson

Mikil ánægja var með störf þingsins og þingfulltrúar voru sammála um það að sækja fram á öllum vígstöðvum, ekki veitir af fyrir okkar samfélag sem í dag býr við algjörlega ófullnægjandi stjórnvöld.