Vill ekki í vasa þeirra sem minnst hafa

Oddviti Framsóknar og óháðra í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, sá sig af einhverjum ástæðum tilneyddan að nefna á Facebook að Mið­flokkurinn styðji skattahækk­anir í bænum. Um er að ræða að nýta útsvarsheimildina sem lög gera ráð fyrir, þ.e. að hækka hana úr 14,48% í 14,52% sem er hámarksútsvar. Ber hann sér á brjóst og hreykir sér af því að meiri­hlutinn, þ.e. samkrull Fram­sóknar og óháðra og síðan Sjálfstæðisflokks vilji með þessu létta greiðslubyrði á barnafólk.

Það sem bæjarfulltrúi samkrullsins nefnir ekki er eftirfarandi:

  • Hækkun á útsvarsprósentu úr 14,48% í 14,52% þýðir hækkun fyrir þann sem hefur 750.000 kr. á mánuði uppá 300 kr.
  • Hann nefnir ekki að fyrir bæjarsjóð þýðir þetta rúmlega 3 milljónir á mánuði eða 36 milljónir á ári.

Það sem hann nefnir ekki heldur er að þessa peninga eigi mögulega að fá frá þeim sem höllustum fæti standa, öldruðum og öryrkjum. Samkrull Framsóknar og óháðra og Sjálfstæðis­flokkurinn (ásamt reyndar Viðreisn) vilja hækka verðskrá fyrir heimilis­aðstoð við aldraða og öryrkja um 24% eða 150 kr./klst. Þetta þýðir að 2ja klst. heimilisaðstoð við aldraða og öryrkja hækkar um sömu upphæð og hækkun mannsins með 750.000 kr. á mánuði. Það má alls ekki rugga bátnum þannig að maðurinn með 750.000 kr. í laun auki skattbyrði sína um 300 kr. en réttara að taka það frá þeim sem minnst hafa. Já með þessu á að létta undir greiðslubyrði á barnafólki (300 kr.) en taka það frá öldruðum og öryrkjum.
Það sem hann nefnir ennfremur ekki er að fyrirhugaðar hækkanir á vissum þáttum gjaldskrár eru langt yfir tilmælum þeim sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út vegna lífs­kjarasamninganna. Með þessu er meiri­hlutinn í Hafnarfirði að gefa lífskjara­samningunum langt nef og telja sig yfir slíka samninga hafnir.

 

Höfundur:  Sigurður Þórður Ragnarsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði

Greinin birtist í Fjarðarfréttum þann 28. nóvember, 2019